14.11.1949
Sameinað þing: 0. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (9)

Rannsókn kjörbréfa

Frsm. 3. kjördeildar (Ásgeir Ásgeirsson):

Herra forseti. Kjördeildin fékk kjörbréf 17 þm. úr 2. kjördeild. Ég hirði ekki um nöfnin, nema hæstv. forseti óski þess sérstaklega. Ég skal þó geta þess, að fyrir 2. þm. Árn., Eirík Einarsson, lá ekkert kjörbréf fyrir, heldur fyrir varamann hans. Það kemur til athugunar þegar aðalþm. nær fullri heilsu og leggur sitt kjörbréf fram. Engar kærur lágu fyrir og engar aths. komu fram, og leggur kjördeildin til, að kosningar allra þessara þm. verði teknar gildar.