04.05.1950
Neðri deild: 95. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 609 í B-deild Alþingistíðinda. (948)

43. mál, jarðræktarlög

Jón Sigurðsson:

Herra forseti. Það fer að nálgast þinglausnir og því nauðsyn að hraða þeim málum, sem afgreiðslu eiga að hljóta. Það mál, sem hér um ræðir, er að dómi Iandbn. þýðingarmikið, og þó að hún mundi ef til vill óska eftir að gera á því breyt., þá vil] hún ekki stofna afgreiðslu þess í hættu með slíkum brtt. og leggur því til, að það verði samþ. óbreytt.