02.05.1950
Efri deild: 99. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 647 í B-deild Alþingistíðinda. (998)
46. mál, sauðfjársjúkdómar
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég hef ekki getað komið fyrr á fund, þar sem ég var önnum kafinn. — Ég hef hlustað á hv. frsm. n., þar sem hann lýsti því yfir, að n. hafi rætt við forstjóra sauðfjárveikivarnanna, og hefði hann verið í öllum aðalatriðum sammála n. um afgreiðslu málsins. Þetta kom mér ókunnuglega fyrir sjónir, því að sami maður var á allt öðru máli, er fjvn. átti tal við hann. Hann taldi þá varhugavert að hafa ekkert hámark og taldi mikilsvert, að í frv. væri sett a.m.k. eitthvert hámark um bætur. Ég vildi gjarnan heyra hjá frsm., hvort þetta sé gegn vilja forstjórans eða honum hafi snúizt hugur og n. tekizt að sannfæra hann. Ég mælist til, að n. athugi þetta mál, og mér skildist, að þessi uppbótaupphæð gæti hlaupið á milljónum króna. Það var verið að ræða um að lækka þessa upphæð, en sumum finnst það hæpið. Það hefði þurft að brjóta þetta mál betur til mergjar, áður en það var flutt. (ÞÞ: Ég vil benda hv. þm. á, að ég hef óskað eftir því, að n. fái hv. þm. Barð. á sinn fund, svo að hann geti skýrt þar sitt sjónarmið.) Um það vissi ég ekki, þar sem ég var hér ekki viðstaddur, en mér er það ánægja að koma á fund. Ég skal verða við ósk hv. frsm. að fella niður frekari gagnrýni á frv. og ræða við n. um málið, áður en það fer út úr þessari hv. deild.