10.10.1950
Sameinað þing: 0. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (1)
Forseti Íslands setur þingið
Þessir þingmenn voru til þings komnir:
1. Áki Jakobsson, þm. Siglf.
2. Ásgeir Ásgeirsson, þm. V-Ísf.
3. Ásgeir Bjarnason, þm. Dal.
4. Ásmundur Sigurðsson, 5. landsk. þm.
5. Bernharð Stefánsson, 1. þm. Eyf.
6. Bjarni Ásgeirsson, þm. Mýr.
7. Bjarni Benediktsson. 1. þm. Reykv.
8. Brynjólfur Bjarnason, 1. landsk. þm.
9. Einar Olgeirsson, 2. þm. Reykv.
10. Eiríkur Einarson, 2. þm. Árn.
11. Emil Jónsson, þm. Hafnf.
12. Eysteinn Jónsson, 1. þm. S-M.
13. Finnbogi R. Valdimarsson, 7. landsk. þm.
14. Finnur Jónsson, þm. Ísaf.
15. Gísli Guðmundsson, þm. N-Þ.
16. Gísli Jónsson, þm. Barð.
17. Gunnar Thoroddsen, 7. þm. Reykv.
18. Gylfi Þ. Gíslason, 3. landsk. þm.
19. Haraldur Guðmundsson, 4. landsk. þm.
20. Helgi Jónasson, 1. þm. Rang.
21. Hermann Jónasson, þm. Str.
22. Ingólfur Jónsson, 2. þm. Rang.
23. Jóhann Hafstein, 5. þm. Reykv.
24. Jóhann Jósefsson, þm. Vestm.
25. Jón Gíslason, þm. V-Sk.
26. Jón Pálmason. þm. A-Húnv.
27. Jón Sigurðsson, 2. þm. Skagf.
28. Jónas Árnason, 10. landsk. þm.
29. Jónas Rafnar, þm. Ak.
30. Jörundur Brynjólfsson, 1. þm. Arn.
31. Kristín Sigurðardóttir, 10. landsk. þm.
32. Lárus Jóhannesson, þm. Seyðf.
33. Ólafur Thors, þm. G-K.
34. Páll Zóphóníasson, 1. þm. N-M.
35. Páll Þorsteinsson, þm. A-Sk.
36. Pétur Ottesen, þm. Borgf.
37. Rannveig Þorsteinsdóttir, 8. þm. Reykv.
38. Sigurður Ágústsson, þm. Snæf.
39. Sigurður Bjarnason, þm. N-Ísf.
44. Sigurður Guðnason, 6. þm. Reykv.
41. Stefán Jóh. Stefánsson, 8. landsk. þm.
42. Steingrímur Aðalsteinsson, 4. landsk. þm.
43. Steingrímur Steinþórsson, 1. þm. Skagf.
44. Þorsteinn Þorsteinsson, í 1. landsk. þm.
Framantaldir þingmenn voru allir á fundi, nema Eiríkur Einarson. 2. þm. Árn., og Ólafur Thors, þm. G-K.
Enn fremur var á fundi Björn Stefánsson, 2. (vara)þm. S-M.
ókomnir voru til þings:
1. Björn Ólafsson, 3. þm. Reykv.
2. Halldór Ásgrímsson, 2. þm. N-M.
3. Hannibal Valdimarsson, 6. landsk. þm.
4. Karl Kristjánsson, þm. S-Þ.
5. Lúðvík Jósefsson, 2. landsk. þm.
6. Skúli Guðmundsson, þm. V-Húnv.
7. Stefán Stefánsson, 2. þm. Eyf.
8. Vilhjálmur Hjálmarsson, 2. þm. S-M.
Forseti Íslands setur þingið.
Þá er þingmenn höfðu skilað sér til sætis, kom forseti Íslands, Sveinn Björnsson, inn í salinn og gekk til ræðustóls.
Forseti Íslands (Sveinn Björnsson): Í ríkisráði, 25. f.m., var gefið út svo hljóðandi forsetabréf:
„Forseti Íslands gerir kunnugt:
Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að reglulegt Alþingi 1950 skuli koma saman til fundar þriðjudaginn 10. október n.k.
Um leið og ég birti þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma til Reykjavíkur nefndan dag, og verður þá Alþingi, sett að lokinni guðsþjónustu í dómkirkjunni, er hefst kl. 13.30.
Gert í Reykjavík 25. september 1950.
Sveinn Björnsson.
Steingr. Steinþórsson.
Forsetabréf um að reglulegt Alþingi 1950 skuli koma saman til fundar þriðjudaginn 10. október 1950.“
Samkvæmt bréfi því, er ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því, að Alþingi Íslendinga er sett.
Frá því er Alþingi var endureist og kom saman af nýju fyrir 105 árum, er þetta 85. samkoma þess, en frá því er það fékk aftur í hendur löggjafarvald fyrir 76 árum, er þetta þing hið 70. í röðinni, en 53. aðalþing.
Ég vil bjóða þingmenn velkomna til starfa og bið þá að minnast fósturjarðar vorrar með því að rísa úr sætum.
[Þingheimur stóð upp, og forsætisráðherra, Steingrímur Steinþórsson, mælti: „Lifi Ísland“. Var tekið undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.]
Samkvæmt 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna fundi, þar til kosinn hefur verið forseti sameinaðs Alþingis.
Gekk forseti síðan út úr salnum, en aldursforseti, Jörundur Brynjólfsson, 1. þm. Árn., gekk til forsetastóls og tók við fundarstjórn.