17.01.1951
Efri deild: 51. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 520 í B-deild Alþingistíðinda. (1138)

20. mál, bann gegn botnvörpuveiðum

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Þetta frv. er upphaflega flutt af ríkisstj., en nú hefur því verið breytt þannig, að miða skal við skip, sem eru 200 tonn, en áður var miðað við 115 tonna skip. Út af fyrir sig játa ég, að mér finnst þessi breyt. ekki neitt til bóta, nema síður sé, þó að ég hins vegar sjái ekki ástæðu til að gera neinar athugasemdir við það.