13.11.1950
Efri deild: 18. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 537 í B-deild Alþingistíðinda. (1183)

65. mál, ábúðarlög

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Eins og grg. þessa frv. ber með sér, er hér ekki um neinar efnisbreyt. að ræða á gildandi löggjöf, heldur er frv. flutt hér í heild vegna samræmingar og lagfæringar.

Landbn. hefur haft þetta mál til athugunar, og við þá athugun kom í ljós, að nauðsynlegt þótti að gera nokkru skýrari ákvæði 55. gr. heldur en í frv. N. bar sig saman við hæstv. landbrh. út af þessum atriðum og flutti í samráði við hann brtt. þá, sem hér liggur fyrir á þskj. 142 við 55. gr. frv.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða neitt um þetta. Sem sagt, landbn. leggur til, að frv. verði samþ. með þessari einu breyt.