13.11.1950
Efri deild: 18. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 541 í B-deild Alþingistíðinda. (1188)

65. mál, ábúðarlög

Forseti (BSt):

Eftir að hafa heyrt yfirlýsingar hæstv. ráðh. og hv. n., þá sé ég ekki ástæðu til þess að fresta umr. nú. Þetta er 2. umr., og við 3. umr. hafa hv. dm. að sjálfsögðu tækifæri til að bera fram brtt., og skal ég sjá til þess, að 3. umr. fari ekki fram alveg á næstunni.