30.01.1951
Neðri deild: 58. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í B-deild Alþingistíðinda. (1265)

47. mál, loðdýrarækt

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins taka fram, að búið er að gera málið að því afskræmi hér á þinginu, að ég held, að ekki sé hægt að samþ. það. Hins vegar eru ákvæði í því, sem ég álít, að eigi fram að ganga, og mun ég því velja þá leið að sitja hjá.