23.01.1951
Neðri deild: 54. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 601 í B-deild Alþingistíðinda. (1358)

81. mál, ríkisreikningurinn 1947

Bjarni Ásgeirsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að ræða málið efnislega en aðeins að leiðrétta það atriði í ræðu hv. þm. A-Húnv. (JPálm) varðandi skipun ákveðins embættismanns, og var þar áreiðanlega átt við Þorbjörn Sigurgeirsson framkvæmdastjóra atvinnudeildar háskólans. Ég hringdi upp á atvinnudeild til þess að fá úr þessu skorið og fékk þar þær upplýsingar, að mín undirskrift var á embættisráðningu hans, enda var hv. þm. A-Húnv. ekki orðinn ráðh., þegar þessi maður var ráðinn til starfa.