26.02.1951
Efri deild: 77. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 667 í B-deild Alþingistíðinda. (1563)

151. mál, ríkisreikningurinn 1948

Gísli Jónsson:

Ég vil þakka hæstv. forseta og biðja hann að flytja hæstv. ráðh. þau boð, að ég muni ræða um þetta atriði hér, að teknar hafa verið úr ríkissjóði 245 þús. kr. án heimildar, og ég mun gera hæstv. ráðh. og þáv. ríkisstj. ábyrg fyrir slíkri ráðstöfun og tel, að það eigi að ræða undir afgreiðslu ríkisreiknings.