01.03.1951
Neðri deild: 76. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 679 í B-deild Alþingistíðinda. (1593)

79. mál, ríkisborgararéttur

Sigurður Bjarnason:

Ég vil gjarnan eiga þess kost að ræða nánar við n. um afstöðu hennar í þessu. Mér er það ljóst, að afstaða hennar er miklu skaplegri og réttsýnni en hv. Ed., og get þess vegna búizt við því, að hjá henni sé trausts og halds að leita um skynsamlegri meðferð þessa máls en á hefur verið höfð í Ed. Ég vil þess vegna taka þessa till. aftur a.m.k. til 3. umr.