02.03.1951
Efri deild: 81. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 741 í B-deild Alþingistíðinda. (1681)

193. mál, verðlag og dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Forseti (BSt):

Ég vil taka það fram út af þessari brtt., að hvort heldur sem þessi brtt. verður samþ. eða felld, þá er ekki hægt að taka frv., sem 1. landsk. var að tala um, á dagskrá, — að minnsta kosti ekki, ef till. er felld, því að þá fer fram atkvgr. um efni þessa frv. En það má ekki bera fram frv. eða till. sama efnis og það, sem búið er að fella, og þýðingarlaust að bera fram það, sem búið er að samþykkja. Ég lít svo á, að þetta sé þýðingarlaust og þetta sé atkvgr. um efni frv.