02.03.1951
Efri deild: 81. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 741 í B-deild Alþingistíðinda. (1683)

193. mál, verðlag og dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Forseti (BSt):

Það er rétt, sem hæstv. dómsmrh. segir, að sumir mundu e.t.v. vilja fella þessa brtt. vegna þess, að hún er við þetta frv. En samt sem áður stendur í þingsköpum, að það megi ekki bera upp aftur till., sem búið er að fella.