12.12.1950
Neðri deild: 37. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í B-deild Alþingistíðinda. (1717)

86. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Frsm. minni hl. (Pétur Ottesen):

Herra forseti. Ég læt mér nægja að skírskota til raka þeirra, sem ég hef borið fram í máli þessu, bæði í nál. mínu og til þess, sem ég hef sagt hér áður við umr. um mál þetta í hv. d. Afstaða mín er enn sú sama til málsins. Ég er andvígur framgangi þess.