25.10.1950
Neðri deild: 9. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í B-deild Alþingistíðinda. (176)

36. mál, togarakaup ríkisins (lántökuheimild)

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Það hafa farið fram umleitanir um þetta efni, og hefur árangurinn orðið sá, að hægt er að fá lán til stutts tíma, þannig að byrjað verður á að taka lánið til stutts tíma, en athugað áfram, hvort ekki sé hægt að koma þessu öðruvísi fyrir, sem mér þykir mjög líklegt. Ef það tekst að fá lán til langs tíma, sem mikill akkur væri í fyrir hina væntanlegu kaupendur að styðjast við, yrði það notað til að greiða fyrir þeim, en eins og stendur er aðeins um stutt lán að ræða.