03.03.1951
Efri deild: 82. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í B-deild Alþingistíðinda. (1802)
176. mál, lántaka handa ríkissjóði
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Út af þessari fsp. er þess að geta, að í fjhn. Nd. er þetta mál nú til meðferðar í sambandi við frv. um togarakaup ríkisins, og kemur þar fram brtt. frá n. um þetta, sem studd er af ríkisstj. Og ég vil beina því til hv. fyrirspyrjanda, að ef hann hugsar sér að bera fram brtt. um þetta efni, þá ætti hann að bera hana fram við það mál, er það kemur hingað, en ekki við það frv., sem hér er til umr.