15.12.1950
Neðri deild: 42. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 919 í B-deild Alþingistíðinda. (1983)
59. mál, vinnumiðlun
Emil Jónsson:
Herra forseti. Hv. 7. þm. Reykv. ræddi nokkuð það, sem ég sagði um vinnumiðlunarskrifstofurnar í Reykjavík, og vildi bera af sér, að hann ætti nokkra sök á því, að þær væru tvær. Hann sagði eins og rétt er, að vinnumiðlunarskrifstofa Rvíkurbæjar hefði verið starfandi áður en hin kom til sögunnar, og honum fannst ekki eðlilegt, að bæjarstj. hefði viljað sætta sig við l. frá 1935. Þar var þó aðeins reynt að fá því framgengt, að haldið yrði uppi vinnumiðlun um allt land með sama hætti og í Rvík, og bæinn rak engin nauð til að halda uppi sinni skrifstofu í trássi við þau víðtæku lög.
Ég skal ekki lengja mál mitt, en vil leyfa mér að spyrja hæstv. forseta, hvort ekki megi fara fram á það við hv. heilbr.- og félmn., að hún athugi á milli umræðna, hvort ekki mætti fara þá leið, sem hv. 3. landsk. stakk upp á um samkomulag í þessu máli, svo að ekki þurfi að koma til þeirra afleiðinga, er ég lýsti í minni fyrri ræðu að það mundi hafa, ef frv. þetta yrði samþ. í núverandi formi.