06.03.1951
Efri deild: 85. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 940 í B-deild Alþingistíðinda. (2018)

59. mál, vinnumiðlun

Forseti (BSt):

Þetta er að sjálfsögðu lítils háttar formgalli á frv. En ég sé nú ekki, að hægt sé að laga það úr því sem komið er. Þetta er 3. umr. og umr. slitið, og verður hv. d. að gera út um þetta með sínu atkv.