15.12.1950
Efri deild: 41. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1019 í B-deild Alþingistíðinda. (2148)

88. mál, aðstoð til útvegsmanna

Forseti (BSt):

Út af ummælum hv. frsm. sjútvn. vildi ég bera það undir hann, hvort ekki sé rétt að taka málið út af dagskrá nú. Og ef hæstv. ráðh. verður frískur á mánudaginn, að taka þá málið fyrir. Ég sé ekki, að málinu sé stefnt í neinn voða fyrir jól, þó að svo sé gert. En ég vildi hafa samráð við hann um þetta atriði.