09.01.1951
Efri deild: 46. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1107 í B-deild Alþingistíðinda. (2264)

61. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Á sínum tíma, er þetta mál var til umræðu í sjútvn., var nefndin að meiri hluta til samþykk því að mæla með frv. óbreyttu. En hún var þó ekki öll á einu máli, þar eð hv. 4. landsk. taldi sig mundu greiða atkv. á móti frv. — Sé ég svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta mál að sinni.