15.01.1951
Efri deild: 49. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1121 í B-deild Alþingistíðinda. (2300)

82. mál, sala jarðeigna í opinberri eigu

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Hér við síðustu umr. heyrðist mér hv. 4. þm. Reykv. óska eftir því, að það yrði upplýst af ráðh., hve mikið ríkissjóður hefur keypt af jörðum á undanförnum árum og hvaða verði. Ég vildi gjarnan fá að heyra, hvort hæstv. ráðh. hefur athugað þetta, og vildi að umr. yrði þá frestað, unz þær upplýsingar liggja fyrir. Ég veit, að hv. 4. þm. Reykv. hefur ekki spurt að þessu út í loftið, og ég tel rétt, að deildin fái þessar upplýsingar. Og ég fyrir mína parta vildi óska, að ráðh. sæi sér fært að upplýsa þetta áður en frv. er afgr., sem ég er annars samþykkur út af fyrir sig.