12.01.1951
Neðri deild: 48. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1143 í B-deild Alþingistíðinda. (2407)
46. mál, orkuver og orkuveita
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Það er nú orðið alllangt um liðið síðan 2. umr. fór fram um þetta mál, og stendur svo á því, að flm. þessarar brtt., hv. þm. S-M., hafa unnið að undirbúningi þessarar till. og hafa haft samráð við míg sem flm. frv. og iðnn. um málið. Það kann að líta svo út sem þessu frv. sé stefnt í nokkra hættu með því, að nú kemur fram á síðasta stigi þess í þessari d. veigamikil brtt. Ég hef nú samt ekki litið svo á, þar sem mjög gott samkomulag hefur verið um þetta mál, og mér virðist af þeim upplýsingum, sem ég hef fengið frá flm. till. og n., að þetta mál sé mjög vel undirbúið að öllu leyti samkv. þeim leiðum og reglum, sem gert er ráð fyrir í raforkulögum. Ég mun þess vegna engan veginn setja mig á móti brtt., heldur mæla með því, að hún verði samþ. og reikna með því, að framgangur málsins verði þar með engan veginn óöruggari, nema síður sé. Ég vænti því, að góð samvinna verði um málið. Ég skal játa, að það er ekki óeðlilegt, að hv. 2. þm. Rang. vilji gjarnan fá um þetta meiri upplýsingar en hann hefur fengið, þar sem hann hefur ekki átt kost á að kynna sér þau gögn, sem fyrir n. liggja, en ég veit, að hv. frsm. n. mundi í ræðu geta gefið upplýsingar um það, sem hv. þm. vill fá að vita, og eins gæti hann gefið hv. þm. og öðrum þm. kost á að lesa þessar skýrslur, en að sjálfsögðu þykir mér nokkru miður, að ósk skuli koma fram um að fresta nú málinu enn einu sinni, vegna þess hve lengi afgreiðsla málsins hefur dregizt. Ég vil þó ekki setja mig á móti því, ef hv. þm. kynnu að leggja á það áherzlu. En ég vil endurtaka það, að ég vænti, að það góða samkomulag, sem hefur verið um þetta mál, bili ekki, þó að þessi brtt., sem mér virðist byggð á góðum undirbúningi, verði samþ.