17.11.1950
Neðri deild: 23. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1227 í B-deild Alþingistíðinda. (2511)
44. mál, sveitarstjórnarkosningar
Jón Pálmason:
Herra forseti. Mér þykir rétt, áður en frv. þetta fer til n., að segja um það örfá orð. — Lög um sveitarstjórnarkosningar, sem samþ. voru hér á Alþ. 1936, hafa að sumu leyti reynzt frekar illa og sérstaklega það atriði þeirra að koma á hlutfallskosningum yfirleitt til sveitarstjórna. Ég tel, að það hafi reynzt illa víða, vegna þess að það hafi orðið til þess að auka óvild og sundurlyndi við kosningarnar, í stað þess, sem var, þegar kosningar til sveitarstjórna fóru fram eins og áður var einmitt í sveitahreppunum. Þá var þar valið í sveitarstjórnir eftir mönnum, en ekki eftir pólitískum flokkum.
Þetta frv., sem hér liggur fyrir, stefnir að vissu leyti í rétta átt. En ég tel, að það gangi of skammt. Og sérstaklega er það tvennt í þessu sambandi, sem ég vildi fá breyt. á. Í fyrsta lagi, að það þurfi fleiri menn hlutfallslega til þess að krefjast hlutfallskosningar til sveitarstjórna, og fyndist mér eðlilegt, að miðað væri við það, að sá hluti, sem geti knúið fram hlutfallskosningu í sveitahreppum, hafi líkur til að koma að manni, t.d. að þar, sem á að kjósa fimm manna nefnd, eins og almennast er í sveitahreppum, þá þurfi 1/5 hluta kjósenda til að gera kröfu um það, til þess að kröfu um hlutfallskosningar verði að hlíta. — Í öðru lagi er það atriði þessara laga, sem hefur reynzt illa að mínu áliti, að það þarf ekki nema tiltölulega mjög fáa menn sem breyta röð frambjóðenda á listum, til þess að hægt sé að fella jafnvel efstu menn á listunum. Þetta er byggt á því, að það er miðað við það, að það eru teknir með í sambandi við útstrikanir allir varamenn á listanum. Þetta er í sjálfu sér óeðlilegt, og fyndist mér mjög sanngjarnt og eðlilegt, að þessu væri breytt á þá lund, að til þess að útstrikun hafi áhrif við kosningar, þá sé útstrikunin miðuð eingöngu við þá aðalmenn, sem eiga að fara inn í nefndina, hvort sem það er hreppsnefnd eða bæjarstjórn. — Þessi atriði langar mig til að biðja hv. allshn., sem vafalaust fær þetta mál til meðferðar, að taka til athugunar, og það, hvort hún gæti ekki fallizt á að breyta þessum ákvæðum í 1., því að mér finnst frekar óeðlilegt að hafa þau eins og þau eru.