04.12.1950
Neðri deild: 32. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1233 í B-deild Alþingistíðinda. (2521)

44. mál, sveitarstjórnarkosningar

Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):

Herra forseti. Ég hef að vísu lítið um þetta mál að segja af hálfu allshn. N. lagði til, að frv. næði fram að ganga óbreytt. — Nú sé ég, að nokkrir hv. þm. flytja hér brtt. við frv. En ég mun bíða með að gera hana að umtalsefni, þar til ég hef heyrt frá hv. flm. um ástæður fyrir þessari brtt.