14.12.1950
Efri deild: 39. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1247 í B-deild Alþingistíðinda. (2570)

138. mál, virkjun Sogsins

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vildi aðeins beina því til hv. fjhn., hvort ekki þætti rétt, að hún tæki þetta frv. til athugunar á milli funda. Ég verð að segja, að það eru heldur litlar upplýsingar, sem hér hafa komið fram um jafnstórt mál. Ég hef nú verið lengi á þingi, en ég minnist þess ekki, að nokkurt mál, þar sem um það hefur verið að ræða að taka slík milljónalán, hafi fengið aðra eins afgreiðslu.