06.03.1951
Sameinað þing: 49. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1403 í B-deild Alþingistíðinda. (2892)

76. mál, áfengislög

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins leyfa mér að mótmæla þeim ásökunum og getsökum, sem hv. þm. Borgf. hefur borið hér fram á okkur hv. 1. þm. Eyf. og mig, sem algerlega röngum. Þær eru fram komnar af ofstæki því og kappi, sem þessi hv. þm. ræður ekki við, þegar um önnur eins mál er að ræða og hér nú. Hann hefur sjálfur fylgt fram till. í þessum málum, sem gert hafa þeim meiri bölvun en nokkuð annað á Íslandi.