15.01.1951
Neðri deild: 49. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 27 í C-deild Alþingistíðinda. (2958)

11. mál, hvíldartími háseta á togurum

Jörundur Brynjólfsson:

Ég tel, að löggjafarvaldið eigi að ganga til móts við kröfur sjómanna í þessu efni. Hins vegar get ég ekki fallizt á, að hvíldartími sjómanna eigi að vera jafn á saltfiskveiðum og ísfiskveiðum. Ég tel, að hér ætti að lögfesta hvíldartímann. Ég fellst því ekki á þessa afgreiðslu málsins og mun freista að bera fram brtt. við 3. umr. málsins, ef það kemst svo langt. Ég segi því nei.