17.01.1951
Efri deild: 51. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í C-deild Alþingistíðinda. (3020)

38. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Forseti (BSt):

Ég frestaði atkvgr. í málinu í gær, vegna þess, að mér þótti heldur fámennt hér í hv. deild, en mér finnst minni ástæða til þess nú, þegar beinlínis er boðað til þess, að atkvgr. fari fram. Ég geri ráð fyrir, að hv. þm. hafi fengið dagskrá. Eins og kunnugt er, geta 2 hv. þdm. ekki komið á fundinn sökum veikinda.