17.01.1951
Efri deild: 51. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í C-deild Alþingistíðinda. (3028)

38. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Gísli Jónsson:

Ég er sammála hv. 4. þm. Reykv., að frv. sé heldur til hins verra, og þess vegna segi ég nei.

Brtt. 318,2–4 teknar aftur.

2. gr. samþ. með 7:4 atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 6:5 atkv., að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu

já: HermJ, KK, RÞ, VH, BrB, BSt.

nei: JJós, ÞÞ, BBen, GJ, HV.

HG greiddi ekki atkv.

5 þm. (LJóh, PZ, StgrA, EE, FRV) fjarstaddir.