22.01.1951
Efri deild: 53. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í C-deild Alþingistíðinda. (3039)

38. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Forseti (BSt):

Ég hef ekki fundið neins staðar í þingsköpum, að gert sé ráð fyrir brtt. við dagskrártill. Og ég mun taka mér frest til að athuga það, hvernig bera skuli upp þessar brtt. Brtt. hv. 4. þm. Reykv. er í eðli sínu sjálfstæð till., og hv. flm. dagskrártill. á þskj. 512 getur tekið aftur till. sína í núverandi mynd og borið fram aðra till.