08.12.1950
Neðri deild: 34. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í B-deild Alþingistíðinda. (307)

21. mál, meðferð einkamála í héraði

Jörundur Brynjólfsson:

Herra forseti. Það er lítið um þetta mál að segja. Nefndin var sammála um að mæla með því; einn nefndarmanna var reyndar ekki viðstaddur, þegar málið var afgreitt. Ég hygg, að þessar breytingar geti ekki valdið ágreiningi, og vænti ég þess, að deildin geti fallizt á frv.