05.12.1950
Neðri deild: 33. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 120 í C-deild Alþingistíðinda. (3143)
26. mál, öryggisráðstafanir á vinnustöðum
Forseti (SB):
Ég vil fullvissa hv. þm. Hafnf. um það, að af hálfu forseta hefur ekki verið nein tilhneiging til að tefja framgang þessa máls. En það er rétt, að málið hefur nokkrum sinnum verið á dagskrá, en ekki komizt að, því að dagskráin hefur oft verið svo löng. Einnig fullvissa ég hv. þm. um það, að þótt orðið verði við ósk hv. 5. þm. Reykv. um að fresta málinu, þá tefji það ekki framgang málsins mikið, og það verði tekið á dagskrá líklega strax á næsta fundi.