18.01.1951
Efri deild: 52. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í C-deild Alþingistíðinda. (3169)

109. mál, erfðalög

Gísli Jónsson:

Í fyrradag spurði ég hæstv. forseta um mál nr. 109, erfðalög, og fékk það svar, að hann mundi ýta á eftir því að fá málið úr n. og tekið á dagskrá. Nú vil ég spyrja hæstv. forseta, hvort hann geti gefið upplýsingar um, hvenær nál. verði skilað, og hvort það megi vænta þess, að málið verði tekið fyrir ekki síðar en næstkomandi mánudag.