18.01.1951
Efri deild: 52. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í C-deild Alþingistíðinda. (3171)

109. mál, erfðalög

Rannveig Þorsteinsdóttir:

Ég vísa til þess svars, sem ég gaf um málið fyrir tveim dögum, og vil bæta því við, að þetta mál verður afgr. í n. í réttri röð við önnur mál. Ef hv. flm. hins vegar sækir það af kappi að fá málið frá n., þótt það sé ekki afgr., þá á hann það við sjálfan sig og hæstv. forseti ræður því.