08.12.1950
Neðri deild: 34. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í B-deild Alþingistíðinda. (324)
106. mál, hegningarlög
Jörundur Brynjólfsson:
Herra forseti. Frsm. allshn. hefur ekki getað komið á þennan fund vegna lasleika, og vil ég því segja hér nokkur orð.
Eins og frv. ber með sér, eru breytingar laganna í því fólgnar, að viðurlög við afbrotum eru nokkuð hækkuð. Gildi peninga hefur raskazt mjög mikið, og því eru sektarákvæði hækkuð nokkuð í krónutali. önnur breyting er ekki, og ég vænti þess, að hv. deild geti fallizt á þetta. Nefndin leggur einróma til, að frv. verði samþykkt.