23.10.1950
Neðri deild: 7. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 183 í C-deild Alþingistíðinda. (3268)

32. mál, viðskiptasamningar við Pólland

Viðskmrh. (Björn Ólafsson) :

Herra forseti. Þetta frv. til l. um framkvæmd á viðskiptasamningum við Pólland er aðeins formsins vegna lagt fyrir þingið, en það er varðandi ráðstöfun á svokölluðum verðjöfnunarsjóði Póllandsviðskipta. Þessu máli er lokið, og um það þarf ekki frekar að fjalla. En ég vil leyfa mér að óska þess, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.