31.10.1950
Efri deild: 12. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 198 í C-deild Alþingistíðinda. (3303)

52. mál, fræðsla barna

Viðskmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að vekja athygli hv. þm. Barð. á því, að héraðsstjórnirnar geta ekki hafið byggingar samkvæmt þessari löggjöf og síðan skuldbundið ríkissjóðinn. Um leið og þessar breytingar koma til, geta sveitarstjórnirnar ekki byrjað að byggja, nema Alþingi hafi veitt fé til þess sérstaklega.

Í sambandi við það, til hvaða n. sé rétt að málinu verði vísað, þá tel ég, að því beri að vísa til menntmn.