19.10.1950
Neðri deild: 5. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í C-deild Alþingistíðinda. (3389)

14. mál, gengisskráning o.fl.

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Þessi síðustu orð geta ekki staðizt, því að almenningur sætti sig ekki við byrðarnar, þó að Alþfl. væri við stjórn, því að á þeim árum, sem hann var í ríkisstj., urðu einnig grunnkaupshækkanir, svo að hann hefur ekki algerlega sætt sig við þær.