19.02.1951
Neðri deild: 71. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 279 í C-deild Alþingistíðinda. (3484)

128. mál, Iðnaðarbanki Íslands

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Þegar mál þetta var afgr. til 3. umr., var gengið út frá, að það yrði athugað af iðnn. á milli umræðna. Nú er hv. form. iðnn. ekki viðstaddur á fundi og athugun ekki lokið, og verður að teljast óeðlilegt, að málið verði afgr. nú, og vil ég beina því til hæstv. forseta, hvort honum þyki ekki rétt að fresta því til næsta fundar.