16.02.1951
Neðri deild: 70. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 339 í C-deild Alþingistíðinda. (3572)

165. mál, menntaskólar

Páll Þorsteinsson:

Herra forseti. Þar sem þau rök, sem ég hyggst færa fram í þessu máli, eru bundin við þann fyrirvara, sem ég hef sett, tel ég ekki eðlilegt að fresta þessari ræðu fram yfir atkvgr. við 2. umr. Því vildi ég síður geyma ræðuna, en ef forseti heldur stíft við það að ljúka umr. nú, tel ég, að ég verði að flytja ræðuna í þeirri lengd, sem ég hafði hugsað mér.