01.11.1950
Sameinað þing: 10. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í D-deild Alþingistíðinda. (3746)
43. mál, fiskideild hlutatryggingasjóðs bátaútvegsins
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég kann alltaf ákaflega illa við þá meðferð á till., að þær fái ekki að fara til n., ef þess er óskað. Og ég vildi leyfa mér að óska þess við hæstv. forseta, að hann frestaði þessari umr., því að alltaf getur verið, að þingmenn vilji bera fram brtt. við þáltill., sem fyrir þinginu liggja. Og það er ekki vani hjá okkur að hindra menn í því. Ég býst ekki við, að það mundi tefja málið, og er ekki mælzt til þess í þeim tilgangi, en ég vildi eindregið mælast til þess, að hæstv. forseti fresti umr. um þetta mál, ef einhverjir hv. þm. vildu bera fram brtt. við það.