13.12.1950
Sameinað þing: 25. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í D-deild Alþingistíðinda. (3753)

83. mál, talstöðvaþjónusta landssímans

Viðskmrh. (Björn Ólafsson):

Ég vil aðeins taka það fram í sambandi við þessa þáltill., að þetta mun verða athugað af fullkomnum velvilja og leitazt við að sjá um, að landssíminn láti í té endurgjaldslaust alla þá öryggisþjónustu, sem með fullri sanngirni er hægt af honum að krefjast.