26.10.1950
Sameinað þing: 9. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í D-deild Alþingistíðinda. (3774)

39. mál, þurrkví

Flm. (Gísli Jónason) :

Herra forseti. Út af ræðu hv. þm. Hafnf. vil ég lýsa því yfir, að ef þessi till. fer til fjvn., vil ég gefa honum tækifæri til að ræða við nefndina um málið. En því tilnefndi ég Patreksfjörð í minni till. að mín persónulega skoðun er sú, að þar sé mun betri aðstaða til mannvirkja sem þessara en annars staðar. — Hef ég svo ekki fleira að segja að sinni.