31.01.1951
Sameinað þing: 34. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 18 í D-deild Alþingistíðinda. (3788)

101. mál, gæðamat iðnaðarvara

Rannveig Þorsteinsdóttir:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hv. allshn. fyrir afgreiðslu þessa máls. Mér er það vel ljóst, að hér er um stórvægilegt mál að ræða og yfirgripsmikið, en eins og ég gat um í framsöguræðu, þá er það álit mitt, að hægt sé að afgreiða þetta smátt og smátt, án þess að nauðsyn sé að taka það allt fyrir í einu.