22.02.1951
Sameinað þing: 45. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í D-deild Alþingistíðinda. (3884)

112. mál, jöfnunarverð á olíu og benzíni

Jón Gíslason:

Herra forseti. Fáein orð vegna fyrirspurnar hv. þm. Barð. — Mér finnst, að till. segi berum orðum, að stefnt sé að því að hafa jöfnunarverð á olíu á öllu landinu, og ég tel, að það sé meining nefndarinnar, sem segir í till., að koma skuli á jöfnunarverði á olíum um allt land.