06.03.1951
Sameinað þing: 49. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 156 í D-deild Alþingistíðinda. (4001)

73. mál, loftskeytastengurnar á Melunum í Reykjavík

Frsm. (Ingólfur Jónsson) :

Herra forseti. Ég hafði tæplega búizt við því, að þetta mál yrði á dagskrá núna, af því að það er vitað, að þetta verður leyst, eins og komið hefur fram í þeim tilkynningum, sem flugmálaráðuneytið hefur látið frá sér fara um það. Um það að afgr. þetta með dagskrá tel ég ástæðulaust að þrátta, og raunar virðist mér það skipta litlu máli, þar sem það er vitað, að þessar stengur verða fluttar strax og veður leyfir.