08.11.1950
Sameinað þing: 12. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 232 í D-deild Alþingistíðinda. (4100)

51. mál, framleiðsla rafmagnstækja

Flm. (Ingólfur Jónsson) :

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu að svo stöddu að segja meira um þessa þáltill. heldur en tekið er fram í grg., sem henni fylgir. En ég legg til, að umr. um hana verði frestað og till. vísað til hv. allshn.