31.01.1951
Sameinað þing: 34. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í D-deild Alþingistíðinda. (4200)

146. mál, Grænlandsmálið

Flm. (Pétur Ottesen) :

Herra forseti. Í þeirri grg., sem fylgir þessari till., er gerð full grein fyrir tilgangi þeim, sem liggur til grundvallar fyrir henni og fyrir því, hvernig þetta mál stendur nú. Mér þykir því ekki ástæða til þess að fara langt út í það. Ég vildi svo leggja til, að málinu sé vísað til hv. allshn. að lokinni þessari umr.