28.02.1951
Sameinað þing: 48. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 330 í D-deild Alþingistíðinda. (4299)

188. mál, aðstoð til frumbýlinga

Flm. (Jörundur Brynjólfsson) :

Herra forseti. Ég get látið nægja að vísa til greinargerðarinnar um þetta mál. Ég vil þó aðeins bæta við, að búast má við því, að það þyrfti að veita beina og óafturkræfa styrki og svo lán, er til framkvæmda kemur, ef duga skal. — Ég skal svo ekki fjölyrða um þetta mál, en geri það að till. minni, að því verði vísað til fjvn. að þessari umr. lokinni, í von um, að hún greiði fyrir málinu á sem beztan hátt.