22.11.1950
Sameinað þing: 17. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 336 í D-deild Alþingistíðinda. (4333)

94. mál, Keflavíkurflugvöllur

Fyrirspyrjandi (Magnús Kjartansson) :

Ég vænti þess, að hæstv. ráðh. svari þessari fyrirspurn síðar, fyrst hann hefur ekki tækifæri til þess á þessum fundi.

En mér kemur á óvart lýsing hæstv. ráðh. á því, hversu erfitt er að fá að vita um það, hvað gerist á Keflavíkurflugvelli. Ég tel víst, að ef ég hefði spurt þessara sömu spurninga varðandi Íslendinga hér á landi, t. d. hversu margar íbúðir Íslendingar hafa byggt á seinustu árum, hve mikið Íslendingar hafa greitt í skatta o. s. frv., að þá hefðu verið gefin mjög greið svör hjá hæstv. ríkisstj., en hins vegar virðist erfitt að fá einföldustu upplýsingar um athafnir Bandaríkjamanna á Keflavíkurflugvelli. En ég vænti þess, að sú skýring hæstv. ráðh. sé rétt, að hann sé allur af vilja gerður að svara þessari fyrirspurn, en hafi ekki haft tíma til þess að gera það. Ég vænti þess að fá svör við þessu bráðlega.